19. desember 2018
Ný skýrsla um konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði
Starfsgreinasamband Íslands vill vekja athygli á nýútkominni skýrslu rannsóknarverkefnis um konur af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði, sem sambandið stóð fyrir. Skýrsluna í heild sinni má lesa hér. Þrjú aðildarfélög Starfsgreinasambandsins lögðu fram aðstoð við vinnslu rannsóknarinnar; Efling stéttarfélag, Eining-Iðja og Báran stéttarfélag.
Kveikjan að verkefninu var #metoo-byltingin sem…
5. desember 2018
Kjaramálaráðstefna - mikilvægur undirbúningur
Dagana 3. og 4. desember stóð Starfsgreinasambandið fyrir kjaramálaráðstefnu um kjarasamninga sambandsins við ríki og sveitarfélög. Ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS og fór hún fram á Fosshotel Reykjavík. Á ráðstefnunni var mestum tíma verið varið í samlestur á köflum samninganna en einnig fór talsverður tími í hópavinnu. Starfsmenn SGS munu svo úr niðurstöðum ráðstefnunnar á næst…
28. nóvember 2018
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands ráðinn
Flosi Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Tekur hann til starfa á næstu vikum.
Flosi býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu en hann er húsasmiður og viðskiptafræðingur að mennt. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Íslandsstofu við fræðslu og ráðgjöf. Áður starfaði hann m.a. hjá ráðgjafarfyrirtækinu KPMG um 10 ára skeið og sem húsasmiður hjá ýmsum aðilum…
24. nóvember 2018
Við erum ekki á matseðlinum!
Um helmingur kvenna starfandi í þjónustugreinum verða fyrir áreitni á vinnustað af hendi viðskiptavina, samstarfsfélaga, birgja eða yfirmanna, um fjórðungur karla verður fyrir slíkri áreitni. Konur upplifa skerta öryggistilfinningu vegna áreitninnar en hún virðist ekki að sama skapi hafa áhrif á karla sem verða fyrir áreitni. Að koma í veg fyrir áreitni á vinnustöðum er því öryggismál og ber að fa…!--more-->
16. nóvember 2018
Landverðir athugið!
Þeir landverðir sem starfað hafa hjá Vatnajökulsþjóðgarði - á vinnustöðum í óbyggðum - frá árinu 2011 og ekki verið í sambandi við sitt stéttarfélag, Landvarðafélag Íslands eða Starfsgreinasamband Íslands, vegna greiðslu fjarvistaruppbótar, eru beðnir um að gera það sem fyrst.
Eftir að greiðsla fjarvistaruppbótar var viðurkennd með dómi Héraðsdóms Austurlands og staðfest í Hæstarétti gerðu fé…