3. febrúar 2020
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SGS og sveitarfélaganna hefst í dag
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst í dag kl. 12:00 og stendur til kl. 12:00 sunnudaginn 9. febrúar. Félagsmenn geta greitt atkvæði á sgs.is eða í gegnum heimasíður síns félags.
29. janúar 2020
Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
Starfsgreinasambandið hefur útbúið upplýsingasíðu þar sem sjá má hvað nýr kjarasamningur við sveitarfélögin inniheldur. Á síðunni er m.a. hægt kynna sér helstu atriði samningsins, samninginn í heild sinni og upplýsingar um atkvæðagreiðsluna.
28. janúar 2020
Samið við Landsvirkjun
Starfsgreinasambandið og Landsvirkjun skrifuðu undir nýjan kjarasamning milli aðila í gær. Kjarasamningurinn byggir í meginatriðum á kjarasamningi milli SGS og Landsvirkjunar sem undirritaður var 3. apríl 2019. Samningurinn nær til félagsmanna innan aðildarfélaga SGS sem starfa hjá Landsvirkjun vítt og breytt um landið. Í samningnum er m.a. tekið á vinnutímastyttingu, ákvæðum um nám og námskeið og breytingum á launatöflu.
27. janúar 2020
Fréttir af samningamálum
Eins og fram hefur komið skipuðu aðilar á opinbera vinnumarkaðnum sérstakan vinnuhóp til að ræða vaktavinnu í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður. Markmið hópsins er að leggja fram heildstæðar breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem taki á núverandi fyrirkomulagi og bregðist við margvíslegum vandamálum sem eru í því.
23. janúar 2020
SGS vísar kjaradeilu við ríkið til sáttasemjara
Viðræðunefnd Starfsgreinasambands Íslands, vegna kjarasamninga við Fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs, samþykkti á fundi í dag, fyrir hönd 18 aðildarfélaga, að vísa kjaradeilunni til Ríkissáttasemjara.