12. febrúar 2020
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SGS og Landsvirkjunar
Starfsgreinasamband Ísland, fyrir hönd aðildarfélaga sinna, undirritaði nýjan kjarasamning við Landsvirkjun þann 27. janúar síðastliðinn. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2019 til 1. nóvember 2022. Atkvæðagreiðsla um samninginn hófst miðvikudaginn 12. febrúar kl. 13:00 og lýkur föstudaginn 14.febrúar kl. 12:00.
10. febrúar 2020
Samningur 17 aðildarfélaga SGS við sveitarfélögin samþykktur
Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir starfsmenn sveitarfélaga liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með miklum meirihluta.
3. febrúar 2020
Baráttukveðjur til Eflingar
Það eru grundvallarréttindi launafólks að geta bundist samtökum til að berjast fyrir sínum kjörum, sá réttur er alger og er ekki hægt að svipta fólk þeim rétti á vafasömum forsendum. Efling stéttarfélag hefur boðað til verkfalla félagsmanna sem starfa hjá Reykjavíkurborg en viðræður aðila hafa engum árangri skilað.
3. febrúar 2020
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SGS og sveitarfélaganna hefst í dag
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning 17 aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefst í dag kl. 12:00 og stendur til kl. 12:00 sunnudaginn 9. febrúar. Félagsmenn geta greitt atkvæði á sgs.is eða í gegnum heimasíður síns félags.
29. janúar 2020
Upplýsingasíða um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
Starfsgreinasambandið hefur útbúið upplýsingasíðu þar sem sjá má hvað nýr kjarasamningur við sveitarfélögin inniheldur. Á síðunni er m.a. hægt kynna sér helstu atriði samningsins, samninginn í heild sinni og upplýsingar um atkvæðagreiðsluna.