24. júní 2011
Kjarasamningur samþykktur
Kjarasamningur SGS f.h. aðildarfélaga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var samþykktur í póstatkvæðagreiðslu. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi: Á kjörskrá voru: 1.492 manns Atkvæði greiddu: 494 eða 33% Já sögðu: 458 manns eða 92,8% Nei sögðu: 35 manns eða 7,1% Auðir og ógildir: 3 seðlar eða 0,1% Kjarasamningurinn er því samþykktur með miklum meirihluta atkvæða.
21. júní 2011
Nýr kjarasamningur við Landsvirkjun
Starfsgreinsamabandið fyrir hönd aðildarfélaga sinna og Landsvirkjun hafa undirritað nýjan kjarasamning. Samningurinn verður kynntur félagsmönnum og atkvæði greidd um hann í vikunni og niðurstöður kosninganna verða kynntar mánudaginn 27.júní. Samningurinn er að flestu leyti eins og samningur SGS við SA. Launahækkanir eru sama prósenta og um sömu eingreiðslur er að ræða. Samningur þessi fylgir sa…
16. júní 2011
Nýr kjarasamningur við Flugleiðahótel ehf.
Starfsgreinasamband fyrir hönd eftirtalinna félaga: Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Afl-starfsgreinafélag, Verkalýðsfélag Suðurlands og Báran stéttarfélag hefur skrifað undir samning við Flugleiðahótel ehf. vegna sumarhótela þeirra. Helstu breytingar á kjarasamninunum eru þessar: Eingreiðsla að upphæð 50.000kr verður greidd út hverjum st…
14. júní 2011
Sýnum ábyrga afstöðu og greiðum atkvæði!
Kæru félagsmenn Við minnum á að á morgun, miðvikudaginn 15.júní, er síðasti séns að póstleggja atkvæði sitt í kosningunni um kjarasamning SGS f.h. aðildarfélaga við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Atkvæðaseðlar skulu hafa borist fyrir kl 16:00 þriðjudaginn 21.júní 2011   Látið ykkur málið varða, takið afstöðu og kjósið!   Kveðja, Starfsgreinasamband Íslands
9. júní 2011
Slitnað upp úr kjaraviðræðum milli Starfsgreinasambands Íslands og sveitarfélaganna
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna sleit á sjöunda tímanum í kvöld viðræðum sínum við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Samningar hafa verið lausir frá 1.desember 2010 og hafa viðræður um nýjan kjarasamning staðið yfir með hléum frá áramótum. Deilur standa milli aðila um launatöflu sem sveitarfélögin hafa boðið og leggja ofuráherslu á að ná fram. Fjölme…