2. nóvember 2012
Kjarasamningsbrot og svört atvinnustarfsemi skaða ferðaþjónustuna
Á sama tíma og fréttir berast af metfjölda erlendra ferðamanna til Íslands árið 2012 er ástæða til að hafa áhyggjur af fjölgun kjarasamningsbrota og undanskota í ferðaþjónustu. Þessi hegðun sem sést meðal ferðaþjónustu- fyrirtækja setur svartan blett á atvinnugreinina og kemur í veg fyrir að hæft fólk vilji starfa í greininni. Þar að auki torvelda slík vinnubrögð þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem …
30. október 2012
Atvinnuþátttaka 81,2%
Samkvæmt nýútkomnum Hagtíðindum Hagstofu Íslands um vinnumarkaðinn var atvinnuþátttaka hér á landi 81,2% á þriðja ársfjórðungi ársins 2012, sem jafngildir því að 181.900 manns hafi verið á vinnumarkaði að jafnaði á tímabilinu. Af þeim voru 172.700 starfandi en 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Ef atvinnuþátttakan er borin saman við sama tímabil árið 2011 þá er um að ræða fækkun upp á 1,6%, eða u…
24. október 2012
Endurbætt jafnréttisstefna og aðgerðaáætlun ASÍ
Í aðdraganda þings ASÍ var jafnréttisstefna og aðgerðaáætlun sambandsins endurskoðuð og samþykkt á miðstjórnarfundi. Í stefnunni er lögð áhersla á innleiðingu jafnlaunastaðalsins til að vinna gegn launamuni kynjanna og virkja bæði kyn til þátttöku á öllum sviðum samfélagsins og innan vébanda hreyfingarinnar. Stefnan og aðgerðaáætlunin 2012-2016 er svohljóðandi:
Stefna
Jafn réttur og jöfn tæki…
22. október 2012
Signý endurkjörin varaforseti - fulltrúar SGS í miðstjórn ASÍ
Fertugasta þingi Alþýðusambands Ísalands lauk fyrir helgi og var meðal annars kosið í stjórn ASÍ. Gylfi Arnbjörnsson var endurkjörinn forseti og Signý Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands var endurkjörinn varaforseti. Auk hennar eru fulltrúar aðildarfélaga SGS í miðstjórn ASÍ þau: Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju, Sigurður Bessason formaður Eflingar, Sigurrós Kristinsdótt…
16. október 2012
Þing Alþýðusambands Íslands
40. þing Alþýðusambands Íslands hefst á morgun (miðvikudag) á Hótel Nordica, Reykjavík og stendur það yfir í þrjá daga. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Atvinnu og velferð í öndvegi. Á þingið mæta tæplega þrjú hundruð fulltrúar launafólks af öllu landinu til að móta heildarsamtökunum stefnu og starfsáætlun og velja þeim forystu. Helstu áherslur þingsins verða atvinnu-, húsnæðis- og lífey…