12. mars 2013
Málþing fræðslusjóðanna
Málþing fræðslusjóðanna Landsmenntar, Sveitamenntar og Ríkismenntar var haldið á Hótel Borgarnesi dagana 4. og 5. mars s.l. Þrátt fyrir töluverð forföll vegna veðurs var mæting býsna góð, en til málþingsins mætti starfsfólk aðildarfélaga SGS og áðurnefndra sjóða. Dagskrá málþingsins var þétt skipuð, en meðal dagskrárliða voru erindi frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, kynning á starfi fræðslus…
6. mars 2013
Mansal á vinnumarkaðnum
Það er talið að 17% mansalsfórnarlamba í heiminum séu þrælar á vinnumarkaði. Rúmlega 60% mansalsfórnarlamba eru í kynlífsánauð og 8% eru bæði í kynlífsánauð og vinnuafl í þrælkun. Líklegra er að konur séu í kynlífsánauð en hinsvegar eru karlar meirihluti þræla á vinnumarkaði. Þessar tölur gefa til kynna að verkalýðshreyfingin þarf að taka virkan þátt í að greina fórnarlömbin og vinna að úrræðum…
26. febrúar 2013
Vertu á verði - nýtt átak í verðlagsmálum
Landssambönd og aðildarfélög ASÍ hefja í dag átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði. Almenningur og atvinnulífið eru hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar. Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnun aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til  aukinnar vitundar. Sendu ábendingar um verðhækkanir Á heimasíðu átaksins www.vertuaverdi.is geta…
25. febrúar 2013
Samningstíminn við ríki og sveitarfélög styttur
Í kjarasamningum Starfsgreinasambandsins við ríki og sveitarfélög eru ákvæði sem gera ráð fyrir að þeir séu skilyrtir sömu forsendum og samningar á almennum markaði. Þegar samningstímabilið var stytt á almenna markaðnum varð því ljóst að það kæmi einnig til styttingar í samningum við ríki og sveitarfélög. Niðurstaðan er samhljóða, samningurinn við ríkið var styttur um tvo mánuði og rennur út 3…
22. febrúar 2013
Vel heppnuð kjaramálaráðstefna
Dagana 18. og 19. febrúar s.l. stóð Starfsgreinasambandið fyrir kjaramálaráðstefnu um kjarasamningsamning SGS og Samtaka atvinnulífsins. Ráðstefnan fór fram Hótel Hilton Nordica og var mæting góð, en ráðstefnuna sóttu fulltrúar frá aðildarfélögum SGS. Fyrirkomulag ráðstefnunnar var þannig að fyrri dagurinn var nýttur í samlestur á fyrstu köflum kjarasamningsins en sá seinni fór mest megnis í…