20. desember 2013
Jólakveðja SGS
Starfsgreinasamband Íslands sendir öllum landsmönnum bestu óskir um gleðirík og yndisleg jól. Með von um farsæla kjarabaráttu og samstöðu á nýju ári.
Vakin er athygli á að skrifstofa SGS verður lokuð milli jóla og nýárs, en hægt er að hafa samband við starfsfólk SGS í gegnum tölvupóst (sgs@sgs.is).[hr toTop="false" /]
19. desember 2013
Laun um jólin
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki álag á stórhátíðardögum, en þeir jóladagar sem eru stórhátíðardagar teljast:
- aðfangadagur eftir kl. 12:00,
- jóladagur,
- gamlársdagur eftir kl. 12:00 og
- nýársdagur
17. desember 2013
Fræðsla fyrir ungt fólk
Félagsmálaskóli alþýðu (FMA) hefur tekið saman kynningarefni sem er sérstaklega ætlað ungu fólki sem er að stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðnum. Kynningin er sett fram á myndrænan og líflegan hátt með aðstoð nýjustu tækni. FMA hefur á undanförnum vikum farið með umrædda kynningu í nokkra af framhaldsskólum landsins þar sem hún hefur hún vakið mikla lukku meðal nemenda. Í kynningunni er m.a. fjal…
16. desember 2013
Fjármálaráðherra neitar atvinnulausu fólki um desemberuppbót
Niðurskurðarhnífurinn fer víða í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og bitnar hart á lágt launuðu fólki á vinnumarkaðnum. Skuldaniðurfellingarúrræðin koma tekjuhærri betur en tekjulægri hópunum, skattatillögurnar sömuleiðis svo ekki sé rætt um hækkanir á gjaldskrám sem bitna hlutfallslega meira á tekjulægri hópunum á vinnumarkaði. Þegar kemur að atvinnulausu fólki tekur steininn úr. Skorið er ni…
13. desember 2013
Pattstaða í kjaraviðræðum að mati forseta ASÍ
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ lýsir stöðunni í kjaraviðræðunum við SA sem ákveðinni pattstöðu. Brugðið geti til beggja átta - aðilar gætu náð saman en svo gæti líka farið að deilurnar harðni enn frekar og það komi til átaka á vinnumarkaði á næstunni. Gylfi fer yfir stöðuna í kjaraviðræðunum í nýjasta innslagi netsjónvarps ASÍ.
!--more-->
[video type="youtube" url="http://www.youtube.com/watch?v=Gu8U9kAM…