20. janúar 2014
Norðurlöndin taka höndum saman í ferðaþjónustu
Samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu á Norðurlöndum (NU-HRCT) hafa mótað norræna atvinnustefnu í ferðaþjónustu. Í atvinnustefnunni er lögð áhersla á sjálfbærni og samkeppnisstöðu Norðurlandanna, hvernig þau geta unnið saman og kynnt sig sem vænlegari kost fyrir ferðamenn. Ferðaþjónustan er víða á krossgötum þar sem hún eykst sífellt og fer f…
12. janúar 2014
Í tilefni umræðu um kjarasamninga
Mikil umræða hefur farið fram í fjölmiðlum og víðar um nýgerða kjarasamninga sem félagsmenn okkar eru þessa dagana að greiða atkvæði um. Umræða um kjaramál er góð en þó þarf að gæta sanngirni og að fólk geti treyst því að rétt sé farið með. Rétt er að koma því á framfæri að mikil og góð samstaða var innan samninganefndar SGS þegar kröfugerð sambandsins var mótuð. Krafan var að hækka lægstu taxta…
10. janúar 2014
Verum á verði gagnvart verðhækkunum
Í kjarasamningunum sem undirritaðir voru 21. desember sl. sammæltust atvinnurekendur og launafólk um aðgerðir til að styðja við markmið um aukin kaupmátt, minni verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga í efnahagslífinu. Meðal þeirra er að fyrirtæki og stjórnvöld gæti ýtrasta aðhalds í verðákvörðunum sínum. Um þessar áherslur var samstaða meðal samningaaðila og stjórnvöld tóku undir mikilvægi þeirra…
8. janúar 2014
Kaldar kveðjur frá ríkinu til launafólks
Blekið er ekki þornað af nýgerðum kjarasamningum þegar stjórnvöld senda kaldar kveðjur til launafólks í formi gjaldskrárhækkana. Komugjöld á heilsugæslustöðvar hækkuðu um 15-20% þann 1. janúar síðastliðinn. Rétt fyrir jól var undirritaður kjarasamningur með hógværum launahækkunum en með þeim samningi fylgdi ásetningur um að halda aftur af hækkunum hjá fyrirtækjum og í opinberum gjaldskrám. Stærst…
6. janúar 2014
Kynningarefni vegna kjarasamninga
Starfsgreinasambandið hefur útbúið kynningarefni vegna kjarasamninganna sem undirritaðir voru 21. desember síðastliðinn. Hér að neðan má nálgast ýtarlegar upplýsingar um samningnana á íslensku sem og upplýsingar á ensku og pólsku. [hr toTop="false" /]