10. mars 2015
Viðræðum slitið – aðgerðir undirbúnar
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins lýsti í dag yfir árangurslausum viðræðum við Samtök atvinnulífsins en reynt hefur verið að ná endurnýjun kjarasamninga í nokkra mánuði án árangurs. Kröfur SGS eru skýrar: Að lægstu laun verði komin upp í 300 þúsund krónur innan þriggja ára svo launafólk hafi möguleika til að lifa af dagvinnulaunum. Það eru mikil vonbrigði að Samtök atvinnulífsins voru ekki til…
9. mars 2015
SGS og SA hittast hjá ríkissáttasemjara
Á morgun, þriðjudag, á samningaráð Starfsgreinasambandsins fund með Samtökum atvinnulífsins. Samningar runnu út um síðustu mánaðamót en mánuði fyrr var deilunni vísað til ríkissáttasemjara. Kröfur SGS eru mjög skýrar og taka mið af því að almennt launafólk geti lifað af dagvinnulaunum sínum innan þriggja ár. Félagar í SGS hafa metið það sem svo að til þess þurfi að lágmarki 300 þúsund krónur á mán…
9. mars 2015
Launamunur kynjanna: Ennþá langt í land
Samkvæmt gögnum frá Eurostat vinna konur í löndum Evróusambandsins sér inn að meðaltali 16,4% minna en karlar fyrir hverja vinnustund. Óleiðréttur launamunur kynjanna mælist minnstur í Slóveníu, en mestur mælist hann í Eistalandi - alls 30%. Þessar tölur gefa til kynna að launamunur kynjanna er ennþá mikill og þróunin í átt að jafnræði í þeim málum er afar hæg. Það er umhugsunarefni að þessar tölu…
6. mars 2015
Hádegisfundur í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Samræming fjölskyldu og atvinnulífs verður til umfjöllunar á hádegisfundi 9. mars í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er reyndar 8. mars en þar sem þann dag ber upp á sunnudag verður fundurinn haldinn á mánudaginn. Dagskrá fundarins. Facebook-síða fundarins.
5. mars 2015
Öllum tryggð atvinnutengd starfsendurhæfing
Samkomulag hefur náðst milli stjórnvalda og heildarsamtaka vinnumarkaðarins um hvernig framlög úr ríkissjóði til starfsendurhæfingarsjóða skuli háttað. Þetta samkomulag mun því binda enda á þá óvissu sem hópar sem standa utan vinnumarkaðar hafa þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK- starfsendurhæfingarsjóði. Samkomulagið tryggir að öllum sem á þurfa að halda er nú tryggð atvinnutengd starfsendurhæfin…