7. apríl 2015
Undirbúningur atkvæðagreiðslu
Undirbúningur að því að endurtaka atkvæðagreiðslu um verkfall er nú í fullum gangi. Fyrri atkvæðagreiðsla okkar var dæmd ólögmæt og því er hún endurtekin núna og greint á milli aðildarfélaga innan SGS og þeirra samninga sem kosið er um. Aldrei hefur verið dæmt í svona máli áður en ljóst er að SA ætlar að beita lagaklækjum frekar en að setjast að samningaborðinu. Atkvæðagreiðslan hefst á mánudaginn…
26. mars 2015
Yfirlýsing frá Starfsgreinasambandi Íslands vegna úrskurðar félagsdóms
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands (SGS) lýsir miklum vonbrigðum með nýfallinn dóm félagsdóms í máli Rafiðnaðarsambandsins vegna tæknimanna hjá RÚV en Samtök atvinnulífsins (SA) höfðu efast um lögmæti verkfallsaðgerða tæknimannanna. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að óheimilt hafi verið að telja atkvæði vegna verkfallsboðunar margra stéttarfélaga í einu lagi, jafnvel þó að um sameiginl…
26. mars 2015
Ríkisstarfsmenn fá 20.000 krónur í apríl
Í samkomulagi sem SGS undirritaði við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs 1. apríl 2014 var sérstaklega samið um eingreiðslu til handa þeim þeim starfsmönnum sem heyra undir kjarasamning SGS við ríkið. Eingreiðslan nemur 20.000 kr. og á að greiðast þann 1. apríl næstkomandi. Hún miðast við þá sem voru í fullu starfi í febrúar 2015, en þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað hluta…
25. mars 2015
Atkvæðagreiðsla í fullum gangi – gríðarlegur meðbyr
Þessa dagana stendur yfir atkvæðakvæðagreiðsla vegna verkfallsboðunar 16 félaga innan Starfsgreinasambandsins, en í henni munu ríflega 10.000 manns, þ.e. verkafólk utan höfuðborgarsvæðisins, taka afstöðu til hvort boðað verði til viðamikilla verkfallsaðgerða frá og með 10. apríl næstkomandi til að þrýsta á atvinnurekendur að mæta sanngjörnum launakröfum sambandsins. Það er því ekki ljóst ennþá hvo…
23. mars 2015
Ný fræðslumyndbönd
Undanfarna mánuði hefur ASÍ unnið að gerð nýrra fræðslumyndbanda sem eru einkum ætluð ungu fólki. Myndböndin hafa nú tekið á sig lokamynd og má nálgast á Netinu, nánar tiltekið á myndbandavefnum Youtube. Um er að ræða sex ný fræðslumyndbönd um ýmis kjara- og réttindamál. Í myndböndunum er t.a.m. fjallað um orlofsmál, ráðningarsamninga, vinnutíma og jafnaðarkaup. Myndböndin eru stutt og hnitmiðuð o…