9. desember 2015
Sveitarfélagasamningurinn samþykktur
Atkvæðagreiðslu er nú lokið um nýjan kjarasamning á milli Starfsgreinasambandsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 20. nóvember síðastliðinn. Starfsgreinasambandið fór með umboð 15 aðildarfélaga sinna og var samningurinn samþykktur í öllum félögunum, en í heildina samþykktu yfir 90% þeirra sem greiddu atkvæði. Félögin sem SGS fór með umboð fyrir eru: Aldan stéttarfélag, AFL…
8. desember 2015
Atkvæðagreiðslu um nýjan samning við sveitarfélögin lýkur á miðnætti
Starfsgreinasambandið vill minna á að atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning SGS við Samband íslenskra sveitarfélaga lýkur á miðnætti í kvöld og verða niðurstöður atkvæðagreiðslunnar kynntar daginn eftir. Atkvæðagreiðslan er með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við sveitarfélögin á kjörskrá. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofu síns stéttar…
1. desember 2015
Dekkri hliðar deilihagkerfisins
Deilihagkerfið hefur verið mikið til umræðu í hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu undanfarið enda tilefni til að hafa töluverðar áhyggjur af þróun þess og áhrifum á kjör og aðbúnað launafólks. Nauðsynlegt er að gera skýran greinarmun á deilihagkerfinu þar sem fólk skiptist á þjónustu án þess að gjald komi fyrir og deilihagkerfinu sem er beinlínis orðinn atvinnurekstur. Evrópsk samtök launfólks í m…
1. desember 2015
Samningur við sveitarfélögin - atkvæðagreiðsla hófst í morgun
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga hófst á slaginu kl. 8:00  á morgun (1. desember) og stendur hún til miðnættis þann 8. desember næstkomandi. Allir kosningabærir félagsmenn fá kynningarbækling sendan í pósti og ætti hann að berast félagsmönnum á næstu dögum. Í bæklingnum má m.a. finna lykilorð sem þarf að nota þegar greitt er atkvæði. Allir félagsmenn eru á…
30. nóvember 2015
Starfsnám fyrir þernur
Í byrjun nóvember hófst nám fyrir þernur í gegnum samstarfsverkefni Starfsafls fræðslusjóðs, Eflingar stéttarfélags, Samtaka ferðaþjónustunnar, IÐUNNAR fræðsluseturs og hótelanna Icelandair Hotels og Center Hotels. Markmið námsins er að auka faglega færni herbergisþerna í starfi. Námið er samtals 60 kennslustundir og skiptist í tvær jafn langar 30 kennslustunda lotur. Möguleiki er að bæta þriðju n…