Aðalkjarasamningar SGS

Aðalkjarasamningur er heiti sem notað er um kjarasamning milli samtaka launafólks og atvinnurekenda um helstu grundvallaratriði varðandi laun, vinnutíma, réttindi og önnur starfskjör sem eru sameiginleg fyrir alla félagsmenn innan tiltekins sambands stéttarfélaga. Slíkur samningur tryggir launafólki lágmarkskjör sem þýðir að samningur um lakari kjör en kjarasamningur kveður á um er ógildur.

Eitt af meginverkefnum Starfsgreinasambandsins snýr að gerð og eftirfylgni kjarasamninga og hefur sambandið séð um gerð og útgáfu fjölda kjarasamninga frá stofnun þess. Stærstu viðsemjendur Starfsgreinasambandsins eru Samtök atvinnulífsins, Samband íslenskra sveitarfélaga og ríkið. Hér að neðan má nálgast gildandi samninga SGS við þessa aðila.

Kjarasamningur SGS og SA 2024-2028 (heildarútgáfa væntanleg) Stöðugleika- og velferðarsamningurinn 2024-2028 Kjarasamningur SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs 2024-2028 (heildarútgáfa væntanleg 1. nóv) Kjarasamningur SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024-2028 (heildarútgáfa væntanleg)
Var efnið hjálplegt?