8. október 2014
Verk Vest mótmælir harðri og óvæginni aðför að launafólki
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfjarða fundaði á Þingeyri í gær þar sem harðri og óvæginni aðför að launafólki var m.a. mótmælt. Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Hin harða og óvægna aðför að launafólki sem birtist í fjárlagfrumvarpi 2015 á sér vart hliðstæðu hin síðari ár. Slík aðför er hvatning til launafólks inn í komandi kjaraviðræður um að láta sverfa til stáls.
Stjórn Verkalýðsfélag…!--more-->
7. október 2014
Afmælisráðstefna Verkakvennafélagsins Framsóknar
Næstkomandi föstudag (10. október) mun standa Starfsgreinasambandið, Efling stéttarfélag, Alþýðusamband Íslands, Jafnréttisstofa og Kvennasögusafn Íslands standa fyrir málþingi í Iðnó í tilefni af 100 ára afmæli Verkakvennafélagsins Framsóknar. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að baráttu verkakvenna á síðustu öld og stöðu þeirra í dag, en yfirskrift ráðstefnunnar er Verkakonur í fortíð og nútíð.…
7. október 2014
Trúnaðarráð StéttVest mótmælir árásum á launafólk
Stéttarfélag Vesturlands hélt fund með trúnaðarráði og trúnaðarmönnum félagsins 2. október síðastliðinn þar sem eftirfarandi ályktun um nýtt fjárlagafrumvarp var samþykkt:
Fundur trúnaðarráðs og trúnaðarmanna Stéttarfélags Vesturlands haldinn fimmtudaginn 2. október 2014, mótmælir harðlega frumvarpi til fjárlaga 2015 sem lagt hefur verið fram. Fundurinn skorar á ríkisstjórnina að draga til baka þ…!--more-->
7. október 2014
Grímulaus leið misskiptingar og ójöfnuðar
Félagsfundur Bárunnar stéttarfélags samþykkti þann 6. október ályktun um þá grímulausu leið misskiptingar og ójöfnuðar sem einkennir orðið íslenskt samfélag, eins og segir í ályktuninni.
Báran, stéttarfélag harmar þann trúnaðarbrest sem orðið hefur á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda frá undirritun kjarasamninga þann 21. desember 2013. Enn og aftur þurfa þeir sem lægstu launin hafa að …!--more-->
7. október 2014
Kjaramálaráðstefna AFLs Starfsgreinafélags ályktar
AFL Starfsgreinafélag stóð fyrir kjaramálaráðstefnu laugardaginn 4. október sl. þar sem eftirfarandi ályktanir voru samþykktar:
Ályktun um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar; Linnulaus flutningur fjármagns úr samneyslu til þeirra tekjuhærri
Kjaramálaráðstefna AFLs Starfsgreinafélags lýsir áhyggjum af þeim breytingum á skattkerfi sem fram koma í fjárlagafrumvarpi. Félagar AFLs telja boðaða mótv…!--more-->