25. september 2012
Starfsmenn SGS á Norðurlandi
Í lok vikunnar sækja tveir nýráðnir starfsmenn Starfsgreinasambandsins Norðurland heim, þau Drífa Snædal framkvæmdastjóri og Árni Steinar Stefánsson sérfræðingur. Á fimmtudag verður Eining-Iðja á Akureyri heimsótt og um kvöldið verða Drífa og Árni gestir á stjórnar- og trúnaðarmannaráðsfundi Framsýnar á Húsavík. Föstudaginn 28. september heimsækja þau svo Verkalýðsfélags Þórshafnar. Fundirnir…
24. september 2012
Nýr vefur SGS í loftið
Vefur Starfsgreinasambands Íslands (SGS) hefur nú verið opnaður í nýrri og endurbættri mynd. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á vefnum sem miða að því að bæta þjónustu við alla þá sem eiga erindi við SGS. Lögð er áhersla á að upplýsingar á nýjum vef séu sem aðgengilegastar og settar fram á greinargóðan hátt. Á vefnum má m.a. nálgast ýtarlegar upplýsingar um erlend systursamtök SGS, umsagni…
12. september 2012
Þing ASÍ-UNG
Annað þing ASÍ-UNG fer fram föstudaginn næstkomandi, 14. september, í sal Rafiðnarskólans að Stórhöfða 27. Þingið munu sitja fulltrúar frá rúmlega 30 stéttarfélögum. Aðalumræðuefni þingsins verður húsnæðismál ungs fólks, en yfirskirft þingsins er: Húsnæði - mannréttindi ekki forréttindi. Ný vefsíða ASÍ-UNG mun líta dagsins ljós á meðan þinginu stendur en hún mun hafa það meginhlutverk að upplýsa u…
12. september 2012
Fyrirlestur um lagaumhverfi heimilisstarfa á Íslandi
Starfsgreinasambandið vekur athygli á að á morgun, föstudaginn 13. september, mun nýráðinn framkvæmdastjóri SGS, Drífa Snædal, flytja fyrirlestur um lagaumhverfi heimilisstarfa á Íslandi. Um er að ræða fyrirlestur sem byggir á meistararitgerð Drífu, en hún lauk nýverið MA-námi í vinnumarkaðsfræði frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð.
Fyrirlesturinn sem ber heitið „Þegar heimili eins er v…
10. september 2012
Þing NU-HRCT
Þing NU-HRCT (Samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu á Norðurlöndum) stendur nú yfir í Þrándheimi í Noregi. Þingið, sem er haldið á fjögurra ára fresti, hófst í gær og lýkur á morgun. Á þinginu sitja fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum en SGS á þar þrjá fulltrúa; Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, Kristján Bragason, framkvæmdastjóri SGS og F…