22. febrúar 2011
Icesave og kjarasamningar
Starfsgreinasambandið hefur lengi verið þeirrar skoðunar að ljúka þurfi Icesave-málinu og að dráttur á því hafi skaðað endurreisn efnahagslífsins. Það er rangt að ,,ekkert hafi gerst” þegar fyrri Icesave-samningurinn var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Skuldatryggingarálag hækkaði og hefur verið óviðunandi síðan. Og enn hefur það svo hækkað síðustu tvo daga eftir yfirlýsingu forsetans. Láns…
15. febrúar 2011
Verkfall starfsmanna í loðnubræðslum hefur verið afboðað.
Ekki náðist starfsmanna í öllum loðnubræðslum hér á landi. Fullur stuðningur og samstaða var í Færeyjum, Noregi og Danmörku við aðgerðir bræðslumanna hér á landi. Ekki hefði verið unnt að landa loðnu þar úr íslenskum skipum.
Sameiginleg samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags og Drífanda Stéttarfélag samþykkti í dag að aflýsa boðuðu verkfalli í fiskimjölsverksmiðjunum níu á félagssvæði félagan…
9. febrúar 2011
(1) (1)
Ekki landað í útlöndum í verkfalli bræðslumanna. Miðstjórn ASÍ ályktar um deiluna.
Starfsgreinasamband Íslands hefur óskað eftir því við systursamtök sín í Færeyjum, Noregi og Danmörku að þau beiti sér fyrir því að ekki verði landað loðnu úr íslenskum loðnuskipum í verksmiðjur í þessum löndum meðan á verkfalli bræðslumanna stendur. Hefð er fyrir því innan hinnar norrænu og evrópsku verkalýðsh…
8. febrúar 2011
Verkfall boðað og aðgerðahópur SGS ræður ráðum sínum
Vinnustöðvun var samþykkt með 77,8 % atkvæðisbærra félagsmanna í Drífanda í Vestmannaeyjum og 75,4% atkvæðisbærra félagsmanna í AFLi á austurlandi. Vinnustöðvunin hefst kl 19:30 þann 15. febrúar n.k. og er ótímabundin. Vinnustöðvunin er boðuð til að knýja á um gerð kjarasamnings um störf félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem að henni standa í fiskimjölsverksmiðjum á félagssvæði þeirra. Einnig…
8. febrúar 2011
Kristján G. Gunnarsson nýtur fyllsta trausts í sínu félagi.
Bæði stjórn og varastjórn Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis lýstu fyllsta trausti á Kristján G. Gunnarssonar formann félagsins á fundi sínum í gær. Stjórnin harmar jafnframt þá ákvörðun Kristjáns að draga sig út úr störfum fyrir Starfsgreinasambandið, ASÍ og Festu. Kristján var eindregið hvattur til þess að halda áfram formennsku í VSFK og til þess „að gegna áfram mikilvægu…