Reiknivélar SGS
Starfsgreinasambandið hefur útbúið nýjar reiknivélar sem félagsmenn og aðrir geta nýtt að vild. Reiknivélarnar eru orðnar tæplega 10 talsins og eiga fleiri eftir að bætast við innan tíðar meðfram þróun á þeim sem fyrir eru. Með reiknivélunum geta notendur m.a. fengið yfirlit yfir kjarasamningsbundnar launahækkanir, áætlað útborguð laun, reiknað út orlofs- og desemberuppbætur o.fl. Athugið að reiknivélarnar eru með fyrirvara um mögulegar villur.