Skipulag aðgerða SGS - dagsetningar

Eins og flestum er kunnungt munu 16 félög Starfsgreinasambandsins hefja verkallsaðgerðir á hádegi næstkomandi fimmtudag, en þá munu um 10.000 manns leggja niður störf víðs vegar um landið. Starfsgreinasambandinu hefur borist þó nokkuð af fyrirspurnum um skipulag aðgerðanna, þ.e. dagsetningar verkfallsins, en skipulagið er eftirfarandi:  30. apríl 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til miðnættis sama dag. 6. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 6. maí). 7. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 7. maí). 19. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 19. maí). 20. maí 2015 Allsherjar vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis (allur 20. maí). 26. maí 2015 Ótímabundin vinnustöðvun hefst á miðnætti aðfaranótt 26. maí 2015.
  1. 12/17/2024 6:01:56 PM Viðsjárverð þróun í leikskólamálum
  2. 12/10/2024 3:23:50 PM Formenn SGS fordæma aðfarir SVEIT og Virðingar í garð verkaf…
  3. 12/6/2024 1:41:51 PM Varað við nýju "stéttarfélagi" í veitingageiranum
  4. 11/22/2024 2:16:19 PM Desemberuppbót 2024 - nýjar reiknivélar