Starfsgreinasambandið vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Almennur vinnumarkaður
Orlofsuppbót er 58.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní. Hér má nálgast reiknivél sem reiknar orlofsuppbót út frá starfshlutfalli og starfstíma.
Ríki
Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2023 var orlofsuppbótin 56.000 kr. miðað við fullt starf. Uppbótin greiðist 1. júní.
Sveitarfélög
Ekki hefur verið samið um fjárhæð uppbótarinnar. Á árinu 2023 var persónuppbót 55.700 kr. miðað við fullt starf. Uppbótin á að koma til greiðslu 1. maí ár hvert.
Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.