Öflugur hópur félagsliða á fræðsludegi

Starfsgreinasamband Íslands og Félag íslenskra félagsliða boðaði til fræðslufundar fyrir félagsliða af öllu landinu þann 20. september 2018. Um 40 félagsliðar mættu á fundinn frá almennu og opinberu félögunum, alls staðar af landinu. Að þessu sinni var lögð áhersla á hópastarf, hvernig félagsliðar geti styrkt sig félagslega og faglega auk þess að styrkja stöðu stéttarinnar út á við. Auk þess var kynning á framkvæmd kjaraviðræðna, hvers ber að vænta í vetur, kynning á Bjarkarhlíð, kynning á framhaldsnámi fyrir félagsliða og jákvæð sálfræði. Fræðslufundur félagsliða er orðinn fastur liður í starfsemi Starfsgreinasambandsins og dæmi um náið og gott samstarf á milli stéttarfélaga á almenna markaðnum og hinum opinbera. Kröfur félagsliða eru þær sömu og undanfarin ár, að stéttin sé viðurkennd sem heilbrigðisstétt og fái löggildingu sem slík. Námið haldi áfram að þróast og störf félagsliða verði kynnt betur í samfélaginu. Myndir frá fræðsludeginum. [gallery columns="4" ids="260846,260839,260840,260845,260844,260847,260841,260843"]
  1. 8/6/2024 10:47:59 AM Nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk í uppstokkun, beitningu…
  2. 7/30/2024 3:18:29 PM Nýir kauptaxtar vegna ríkis og sveitarfélaga
  3. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  4. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur