Kjarasamningur við SÍS 2024-2028 samþykktur

Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 17 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, vegna nýs kjarasamnings SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 5.-15. júlí. Á kjörskrá voru 3972 manns og var kjörsókn 17,45%. Já sögðu 84,27%, nei sögðu 10,39% og 5,34% tóku ekki afstöðu.

Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 17 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum.


Eftirtalin félög eiga aðild að samningnum: Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Þórshafnar og Verkalýðsfélagið Hlíf vegna Garðabæjar.

Kjarasamningur SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga 2024-2028

  1. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  2. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
  3. 7/5/2024 11:51:04 AM Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
  4. 7/4/2024 12:49:29 PM Kjarasamningur við sveitarfélögin í höfn