Atvinnuleysi mældist 3,1% á fjórða ársfjórðungi 2015

Á fjórða ársfjórðungi 2015 voru 189.200 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 183.300 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81,6%, hlutfall starfandi mældist 79% og atvinnuleysi var 3,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2014 fjölgaði starfandi fólki um 5.300 og hlutfallið jókst um 1,5 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.800 manns og hlutfallið sömuleiðis um eitt prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 3.800 eða 3,8%. Atvinnuleysi var 3,6% á höfuðborgarsvæðinu en 2.2% utan þess. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,7 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,6 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. Heimild: Vinnumarkaður á fjórða ársfjórðungi 2015
  1. 7/15/2024 10:47:20 AM Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga 2024-2028…
  2. 7/8/2024 11:05:45 AM Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
  3. 7/5/2024 11:51:04 AM Kosið um nýjan kjarasamning við sveitarfélögin
  4. 7/4/2024 12:49:29 PM Kjarasamningur við sveitarfélögin í höfn