22. ágúst 2024
Ræstingarauki um næstu mánaðarmót
Í kjarasamningi SGS og SA, sem undirritaður var í mars síðastliðnum, var samið um svokallaðan ræstingarauka fyrir starfsfólk í ræstingum. Þetta þýðir að ræstingarfólk fær sérstaka viðbótargreiðslu með launum fyrir ágúst sem greidd verða út um næstu mánaðamót.
6. ágúst 2024
Nýr kjarasamningur fyrir starfsfólk í uppstokkun, beitningu og netavinnu
Á dögunum gekk Starfsgreinasambandið frá nýjum kjarasamningi fyrir starfsfólk í uppstokkun, beitningu og netavinnu. Samningurinn er á milli SGS annars vegar og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða hins vegar. Um er að ræða langtímasamnings sem gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028, sbr. samnings SGS og Samtaka atvinnulífsins frá því í mars sl.
30. júlí 2024
Nýir kauptaxtar vegna ríkis og sveitarfélaga
Nýir kauptaxtar fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum eru komnir á vefinn og má nálgast hér. Kauptaxtarnir gilda frá 1. apríl til 31. október 2024.
15. júlí 2024
Kjarasamningur við SÍS 2024-2028 samþykktur
Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 17 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, vegna nýs kjarasamnings SGS og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var 3. júlí síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 5.-15. júlí. Á kjörskrá voru 3972 manns og var kjörsókn 17,45%. Já sögðu 84,27%, nei sögðu 10,39% og 5,34% tóku ekki afstöðu.
8. júlí 2024
Kjarasamningur við ríkið 2024-2028 samþykktur
Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, vegna nýs kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 25. júní síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 1.-8. júlí. Á kjörskrá voru 1.309 manns og var kjörsókn 22,84%. Já sögðu 87,96%, nei sögðu 7,69% og 4,35% tóku ekki afstöðu. Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 18 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum.