4. júlí 2024
Kjarasamningur við Landsvirkjun samþykktur
Atkvæðagreiðslu er lokið um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Landsvirkjunar sem undirritaður var 25. júní síðastliðinn. Samningurinn nær til félagsmanna innan aðildarfélaga SGS sem starfa hjá Landsvirkjun vítt og breitt um landið og vinna við rekstur, viðhald og aðra þjónustu í dreifikerfum og aflstöðvum sem eru í rekstri.
1. júlí 2024
Atkvæðagreiðsla hafin um nýjan kjarasamning við ríkið
Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóð hófst á slaginu kl. 12:00 í dag og stendur til 8. júlí næstkomandi. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða tilkynntar sama dag.
  • 1
  • 2
  • Síðasta