30. desember 2020
Um áramót
Árið sem er að líða hefur í öllum skilningi verið afar óvenjulegt. Covid-19 og aðgerðir til að hefta útbreiðslu hennar hafa haft gríðarlega mikil áhrif á launafólk og aðstæður á vinnumarkaði. Algert hrun hefur verið í ferðaþjónustu með tilheyrandi fjöldauppsögnum og gjaldþrotum. Það hefur reynt mikið á samtök launafólks í þessu ástandi að verja kjör okkar fólks og reyna að tryggja að aðgerðir stjórnvalda nýtist almenningi í landinu en ekki sérvöldum hópum.
21. desember 2020
Jólakveðja SGS 2020
Starfsgreinasamband Íslands sendir öllum landsmönnum bestu óskir um gleðirík jól og von um ríka samstöðu á nýju ári. Vakin er athygli á að skrifstofa SGS verður lokuð milli jóla og nýárs, en ef erindið er brýnt er hægt að hafa samband við starfsfólk SGS í gegnum tölvupóst (sgs@sgs.is).
15. desember 2020
Ályktun frá formannafundi SGS
Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af því hvernig gengur að innleiða og skipuleggja styttri vinnuviku hjá starfsmönnum sveitarfélaga.